Breytilegir óverðtryggðir vextir Framtíðarinnar taka breytingum vegna ákvörðunar peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands um að hækka meginvexti bankans um 0,25% samanber tilkynning Seðlabankans sem nálgast má hér.
Þann 14.12.2018 munu því óverðtryggðir breytilegir vextir námslána hækka úr 4,35% í 4,60% og almennra lána úr 5,10% í 5,35% en vaxtabreytinguna ber að tilkynna með 30 daga fyrirvara.
Lán Framtíðarinnar eru uppgreiðanleg hvenær sem er á lánstímanum án kostnaðar.