Markmið Framtíðarinnar er að bjóða upp á nýjar vörur á íslenskum lánamarkaði sem eru einfaldar og þægilegar í notkun. Framtíðin er útibú Kviku banka hf.
Við bjóðum upp á sérsniðna vexti sem taka mið af aðstæðum hvers og eins lántaka.
Við störfum eingöngu á netinu og leggjum áherslu á að þú getir þjónustað þig hratt og örugglega á vefnum, þínu persónulega útibúi.
Við hlustum á viðskiptavini og kappkostum að bjóða upp á lán sem fólk kallar eftir. Markmiðið er að gera lífið þitt þægilegra.